UMU
Make-up sett
Make-up sett
Tags: NÝTT!, UMU, Viðarleikföng, Þykjustuleikur
12 á lager
Couldn't load pickup availability
15 hluta leiksett
ALLT SEM ÞARF Í SNYRTITÖSKUNA 💄
Draumur fyrir litla snyrtifræðinga! Fallegt snyrtisett úr við sem inniheldur allt sem þarf fyrir skemmtilegan snyrtileik – varalit, púður, maskara, naglalakk, ilmvatn og margt fleira.
Börnin geta farðað sig, dúkkurnar, vini eða fjölskylduna og leyft hugmyndafluginu að njóta sín – án þess að nokkur þurfi að hafa áhyggjur af varalit á speglinum eða naglalakki í sófanum!
LEIKUR SEM EFLIR SKÖPUNARGLEÐI ✨
Snyrtileikurinn hvetur til ímyndunarafls og sköpunar og hjálpar um leið til við að þjálfa fínhreyfingar og sjálfstæði. Settið býður einnig upp á notalegar samverustundir þar sem börnin geta leikið sér að því að gera sig og aðra fína.
ENDIST Í ÓTAL LEIKSTUNDIR
Snyrtivörurnar klárast aldrei, maskarinn þornar ekki og naglalakkið skilur engin merki eftir sig. Settið er úr vönduðum við, létt og meðfærilegt og hentar því jafnt fyrir leik heima sem á ferðinni.
Vandað og fallegt leiksett sem býður upp á endalausa möguleika í leiknum. 💕
Nánari upplýsingar um vöru
Nánari upplýsingar um vöru
14 HLUTA SNYRTISETT 💄
Fallegt snyrtisett fyrir litla snyrtifræðinga sem elska að leika sér, gera sig fína og herma eftir þeim fullorðnu.
Settið inniheldur:
1. Ilmvatn
2. Hreinsimjólk
3. Snyrtitaska
4. Varalitur
5. Kabuki-förðunarbursti
6. Kinnalitur
7. Augnblýantur
8. Spegill
9. Maskari
10. Naglaþjöl
11. Augnskuggabursti
12. Naglalakk
13. Púðurdós
14. Augnskuggapalletta
Afhendinga möguleikar
Afhendinga möguleikar
Við erum einungis netverslun.
Við sendum vörurnar okkar með íslandspósti eða dropp.
Frí sending á næsta droppstað ef verslað er fyrir 15.000kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru
Verð á póstþjónustu fyrir sendingar með Íslandspósti miðast við verðskrá póstsins.
Verð á póstþjónustu fyrir sendingar með Dropp er:
- Dropp staðir/póstbox innan höfuðborgasvæðis: 870kr
- Dropp staðir/póstbox utan höfuðborgasvæðis: 1.075kr
- Heimsending innan höfuðborgarsvæðis: 1.410kr
- Heimsending utan höfuðborgarsvæðis: 1.660kr
Verð fyrir sendingar utan Íslands miðast við verðskrá póstsins.
Greiðslu möguleikar
Greiðslu möguleikar
Hægt er að borga með greiðslukortum í gegnum örugga síðu Teya.
Einnig er hægt að borga með Pei og með Netgíró.
Upplýsingar um vörumerki
Upplýsingar um vörumerki
Hjá UMU eru leikföngin handsmíðuð úr tré með ógleymanlegri, frumlegri hönnun, sem eru búin til með mikilli nákvæmni og gefa um leið pláss fyrir ímyndunarafl barna.
Leikföngin eru úr náttúrulegu tré og eiturefnalausri, vatnsleysanlegri málningu sem flagnar ekki, eru umhverfisvæn og örugg fyrir hendur og munn barna. UMU leikföng eru ekki bara fyrir eina árstíð - þau endast í mörg ár og geta verið erfðar frá einu systkini til annars.
Leikföngin hjá UMU uppfylla stranga evrópska staðla EN 71 og eru CE-merkt.