Skilmálar um notkun á Vefkökum

Skilmálar þessir eiga við um notkun vefkaka á léninu hdottir.is

Hvað eru vefkökur (e. Cookies)?

Vefkökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvunni þinni eða öðrum snjalltækjum sem þú notar til að heimsækja vefsíðu í fyrsta sinn. Vefkökurnar gera það að verkum að vefsíðan man eftir þér og hvernig þú notaðir síðuna í hvert sinn sem þú heimsækir hana aftur. Vefkökur innihalda ekki persónuupplýsingar á borð við nafnið þitt, netfang, símanúmer eða kennitölu.

Við notum vefkökur í þeim tilgangi að bæta virkni vefsíðunnar með það að markmiði að bæta þjónustu við notendur. Það er stefna okkar að nota vefkökur með ábyrgum hætti. Við notum vefkökur til að sníða vefsvæðið að þörfum notenda t.d. til að vista stillingar notenda, til að vinna tölfræðilegar upplýsingar, til að greina umferð um vefsvæðið og í markaðslegum tilgangi.

 

Nauðsynlegar vefkökur (vefkökur frá fyrsta aðila)

Vefsíða okkar notar bæði eigin vefkökur og vefkökur frá þriðja aðila. Eigin vefkökur eru kökur sem verða til á síðunni okkar. Vefkökur senda eingöngu upplýsingar til okkar.

Nauðsynlegar vefkökur virkja eiginleika á vefsvæðinu sem verða að vera til staðar svo vefsvæðin virki eins og ætlast er til. Nauðsynlegar vefkökur eru vefkökur frá fyrsta aðila sem eingöngu eru notaðar af hdottir.is. Hér undir falla til dæmis kökur sem muna hvort notandinn er skráður inn á vefsvæði okkar eða hvaða sérstöku stillingar notandinn hefur valið.

Vefkökur frá þriðja aðila.

Vefkökur frá þriðja aðila eru vefkökur sem verða til vegna aðgerða sem stafa frá öðrum aðila en þeim sem rekur síðuna sem þú ert að heimsækja, aðila sem við er í samstarfi við eða hagnýtir þjónustu frá. Við notum vefkökur frá þriðja aðila til að deila sumum upplýsingum með samstarfsaðilum sem við notum til að auglýsa með, svo við vitum hvaðan þú komst inn á vefsíðuna. Við getum einnig notað vefkökur til að greina hvaða tilteknu síður á vefsíðunni þú hefur áhuga á. Þessar upplýsingar má nota til að birta þér auglýsingar sem við teljum að þú hafir áhuga á að sjá, til að sníða þau skilaboð sem við birtum þér eða það efni sem við sendum þér. Við deilum ekki persónugreinanlegum upplýsingum með þessum aðilum eða vefsíðum þriðja aðila sem birta auglýsingar fyrir okkur. Notendur vefsvæðisins geta nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur á vefsíðum þeirra.

Meðferð Helgadóttir á persónuupplýsingum

Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Helgadóttir lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.

Hvernig stilli ég vefkökur?

Vakin er athygli á því að þriðju aðilar, s.s. þeir sem veita markaðs- eða greiningarþjónustu á netinu, nota einnig vafrakökur. Upplýsingar um notkun þeirra á vafrakökum er hægt að finna á vefsíðum þeirra.

Notendur geta lokað á vafrakökur með því að breyta stillingum á vafra. Með þeim hætti geta notendur dregið til baka samþykki sitt fyrir notkun á vafrakökum. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, þ.m.t. nauðsynlegar kökur, mun það hafa áhrif á virkni vefsíðunnar. Nánari upplýsingar um hvernig stilla má vafrakökur á mismunandi vöfrum má finna hér.